Friday, March 09, 2007

Til ömmu

Þú fórst það var haust
himnaenni þitt kalt
ég strauk ofurlaust
og þér þakkaði allt

Hvert augnablik þitt tár
þú grætur hans ævi
um ókomin ár
falla í hjartans sævi

Hans hverfandi armur
þig hlýlega vefur
og hvíslandi harmur
þú veist hvað þú hefur

Og í eyra þitt segir
Ég grét, ég mun gráta
himnahöfuð þitt sveigir
þín þögn lífsins gáta

2 comments:

Anonymous said...

Alveg óendanlega fallegt systir mín góð :'(

Anonymous said...

æ takk takk...enda um óendanlega fallega manneskju...