Thursday, March 31, 2005

Nýtt Blogg!

Jæja þá er ég loksins búin að flytja mig yfir í blogspottið. Er'ett'ekki mekklu betra?
Fékk endanlegt ofnæmiskast á blogg.central dæminu. Ohh, svo er svo rosalega uppfrískandi að skipta um blogg. Bara skipta sem oftast! Tek Ester mér til fyrirmyndar ;) Catch me if you can! Svo er bara skólinn að byrja aftur eftir páskafrí og er það alveg hressandi líka. Ella systir er síðan væntanleg til landsins í dag, jibbí! Hlakka til að sjá þig lil' sis :)

Apríl verður alveg rosalegur mánuður. Enda besti mánuðurinn ;) ´Nú líður senn að því að ég verði 25 ára gömul sveskja og í tilefni þess ætla að halda smá sveskjuteiti 9.apríl. Allir sem elska mig eru velkomnir, hinir mega líka koma. Jamm svo er Háksi lil'bro að fermast eða firmated eins og ég kalla það helgina á eftir. Og helgina þar á eftir er árshátíð hjá vinnunni hans Tóta. Þannig að það verður action í apríl!

blesíbili