Tuesday, July 31, 2007

ég fer í fríið....

Vinn á morgun og svo er ég komin í frí og mun líklega vinna minn síðasta vinnudag á Endurhæfingardeild Hrafnistu. Ég kveð með söknuði, vá alveg yndislegt fólk gamalt sem ungt, en veit að þau losna ekkert svo auðveldlega við mig því ég ætla að syngja í Jólasundinu í desember og svo verð ég eitthvað að syngja við messur í haust.

Jiddúdda ég er að fara út ekkjámorgunheldurinn! 16 dagar hvorki meira en minna og svo þegar ég kem heim þá byrjar skólinn :)

Erum búin að mála eins og geðsjúklingar síðustu daga og það sér fyrir endan á þessu hjá okkur. Ætlum að setja íbúðina á sölu í haust, vonandi, kaupa svo aðra, vonandi.

2 comments:

Anonymous said...

góða skemmtun í fríinu, ég ætla að vera leiðinleg og klukka þig þá átt að segja 8 staðreyndir um þig og klukka svo 8 aðra

dagny said...

Bið að heilsa frændum vorum í danaveldi, skemmtu þér óge vel og sötraðu eins og einn öl fyrir mig ;o)