Hef ekkert getað skrifað í viku!
Ásæðan er mjög líklega: Post-ammælis-stress-disorder.Já ég hef ekki verið með sjálfri mér eftir ammælið mitt sem heppnaðist frábærlega! Stóðum náttlega á haus og fengum góða hjálp frá Ester og familíunni. Takk og takk. Það er nebbnilega ótrúlegt hvað hægt er að gera góða hluti í lítilli kjallaraíbúð! Þar þjappaðist saman tvöföld fjölskylda og vinir á svo hagstæðan hátt að allir komust fyrir. Þið eigið hrós skilið. Svo leið mér eins og Rós líður í hnappagati (eða annars er það ekki jákvætt?) og fékk svo bestu gjöf sem hægt er að fá þegar manni finnst mar gamall. Lífshlaup mitt í myndum (frá fæðingu) og ljóðum (frá því ég var 10 ára) sem var bytheway MJÖG frjótt tímabil í lífi mínu. Það fór ekkert úrskeiðis sem getur svo auðveldlega farið úrskeiðis í svona samkomum. Eins og t.d. maturinn óætur, aha, neinei, hann var svooo ljúffengur þó ég segi sjálf frá. Bollan óáfeng, fannst nú flestir vera í góðum gír. Ammælisbarnið dauðadrukkið og á mjög svo dramatískum trúnó við alla, hehe ekki fyrr en undir morgun ;) Tónlistin var í eðalgæðaflokki í stjórn Ester og Ellu. ´90 nostalgíju diskur með lögum sem ég dýrkaði í denn (ókei ég var nineties fórnarlamb) og ekki má gleyma honum Van Son víetnamska söngvaranum sem fór á kostum! En um líf hans má lesa á síðunni hennar Ester.
Ég er byrjuð á æfingum í Íslensku Óperunni á Apótekaranum eftir Hayden. Úff púff og stúff. Ætla að semja lag um gærdaginn.
10 litlir sópranar ætluðu að syngja'í kór5 flippuðu á því og böðuðu sér uppúr klór5 litlir sópranar eftir voru þáþær sungu sig í helog átu Jóa FelJá, eins og kemur fram í þessu ljóði þá hætti helmingur kórsins á öðrum degi! Hvílíkt úthaldsleysi. hehehe. Og nú get ég ekki hætt! Ef ég hætti þá hrynur þessi magnþrungni kór eins og Domino kubbar. Það tekur á sálrtetrið að dröslast þangað á hverjum degi í 4 kl.st en svo þegar ég er komin þá finnst mér svo gaman og get alleg hugsað mér að vinna í þessum bransa. Ég meina kommon að syngja og leika sér og fá borgað fyrir það! Hvað getur hugsanlega verið betra?
Fyrir utan náttlega atvinnudraum minn að eiga pulsuvagn.
Fyrirsögn Dagsinsbætti á sig 50 kíló á 5 mánuðum!Hvaðan kom viljastyrkurinn?