Wednesday, January 04, 2006

Gata ársins


hún er gömul, hún er kósý, hún er í hversdagsfúnkístíl, hún er stutt, hún er stutt frá hlemmi, hún er stutt frá draumnum, hún er gróðursæl, hún er samhverf, hún er hrá, hún er grá, hún er hávaðasöm, hún er lifandi, hún á vífil sem labbar fram og til baka.

í henni búa foreldrar, pör, einstæðingar, gamlingjar, rónar,útlendingar, brjálæðingar, þjófar, englar, börn en aðallega kettir.

1 comment:

Anonymous said...

og mig langar að flytja.......

er einhver til í að kaupa?